Örninn 2026
Örninn 2026

Viðtal

Gert ráð fyrir 12 holu velli og tveimur 18 holu á nýju golfsvæði í Hafnarfirði
Fimmtudagur 25. júní 2026 kl. 10:01

Gert ráð fyrir 12 holu velli og tveimur 18 holu á nýju golfsvæði í Hafnarfirði

„Við tökum það hlutverk okkar alvarlega að vinna að framþróun golfíþróttarinnar og viljum gera okkar til að gera fleirum kleift að koma í golf,“ segir Ólafur Þór Ágústsson framkvæmdastjóri Keilis um metnaðarfullar áætlanir um nýtt golfsvæði í Snókalöndum í upplandi Hafnarfjarðar.

Þar er búið að gera ráð fyrir því sem kallað hefur verið framtíðaraðstaða fyrir golfíþróttina í Hafnarfirði; áætlanir gera ráð fyrir einum 12 holu velli og tveimur 18 holu völlum, auk æfingasvæðis og aðstöðu innanhúss.

„Það eru samtals tólf hundruð manns á biðlista klúbbanna tveggja í Hafnarfirði,“ segir Ólafur í samtali við kylfing.is. „og við erum að horfa upp á það að fjöldi fólks í bæjarfélaginu sem vill gjarnan byrja í golfi kemst ekki að í neinum klúbb í nágrenni sínu. Þetta mun hamla framþróun íþróttarinnar og þessu viljum við breyta.“

Bjartsýnn á að framkvæmdir hefjist á næstu árum

Ólafur fer varlega þegar hann er spurður um tímaáætlanir og bendir á að aðalskipulag fyrir svæðið sé enn til umfjöllunar. „Þegar því ferli er lokið verður hægt að byrja á deiliskipulagi og umhverfismati og það er engin leið að spá fyrir um hversu langan tíma það tekur. Ég ætla hins vegar að vera bjartsýnn og skjóta á að framkvæmdir gætu hafist eftir þrjú til fjögur ár og að fyrstu áfangar gætu verið komnir í notkun eftir svona fimm ár.“

Tólf holu völlur verður vinsæll

Athygli vekur að í áætlun um uppbygginguna er gert ráð fyrir 12 holu velli á svæðinu í Snókalöndum. „Völlur af þessari stærð er glettilega afkastamikill og okkar trú er að margir kylfingar séu að leita að þessari útgáfu,“ segir Ólafur.

„Þetta er stærð sem býður upp á góða nýtingu; við getum ræst lengur út á þennan völl og ég sé fyrir mér að það verði meiri umferð um hann en vellina af fullri stærð.“ Hann bendir á að vinsældir níu holu valla hafi verið að aukast undanfarin ár, til dæmis í Korpu og í Garðabæ. „Tólf holu völlur er góð millistærð og á eftir að verða vinsæll, til dæmis vegna þess að hann verður aldrei upptekinn fyrir mótahald eins og stóru vellirnir.“

Horft til næstu áratuga

Ekkert lát er á vinsældum golfíþróttarinnar á Íslandi – hvað þá í Hafnarfirði. Verkefnið í Snókalöndum á að svara þeim vinsældum og þar er ekki aðeins horft til næstu ára.

„Við erum að hugsa þetta verkefni til næstu þrjátíu ára og þess vegna viljum við byrja á því að fullhanna svæðið áður en framkvæmdir hefjast,“ segir Ólafur. „Þannig ættum við að geta tekið þetta skref fyrir skref, án þess að lenda í aukakostnaði eða töfum við að breyta skipulaginu. Ég sé fyrir mér að við gætum til dæmis byrjað á tólf holu vellinum og komið honum í rekstur; séð hvernig gengur og haldið svo hægt og rólega áfram með uppbygginguna eftir því sem þörfin eykst og aurar koma inn í kassann.“

Hefðbundin fjármögnun

Nýr meirihluti í bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur þegar sett þetta verkefni inn í málefnasamning sinn, sem skiptir miklu máli fyrir framgang þess. „Það er auðvitað afar jákvætt og veitir þessu verkefni aukinn stöðugleika,“ segir Ólafur og bendir á að fjármögnunin verði með þeim hætti sem tíðkast hefur um golfklúbba; 80% komi frá bæjaryfirvöldum og 20% frá klúbbnum sjálfum.

„Það sama gildir um þær breytingar sem við erum að ráðast í á klúbbhúsinu hjá Keili og núverandi velli. En eftir því sem tímar líða og golfsvæðið í Snókalöndum verður orðið meira sjálfbært þá getur klúbburinn meira farið að stýra framkvæmdahraðanum. Sá hraði mun hins vegar alltaf ráðast af þörfinni.

En reynsla síðustu ára og áratuga segir okkur að vinsældir golfíþróttarinnar á Íslandi eru bara að aukast, þannig að það er ástæða til að vera bjartsýnn með þetta verkefni.“

Golfskáli Keilis.