Ein sigursælasta golfkona sögunnar ánægð með Íslandsferð
„Ég var að koma til Íslands í fyrsta sinn og hef ásamt vinkonum mínum notið þess virkilega. Við höfum farið á fallega staði og leikið golf,“ sagði Nancy Lopez en hún er ein frægasta golfkona heims og ein sú sigursælasta í sögunni.
„Veðrið hefur þó ekki beint leikið við okkur og við höfum ekki spilað eins mikið golf eins og við ætluðum, sumar hafa þó látið sig hafa það en við vorum að klára 18 holur á Urriðavelli og það var skemmtilegt, flatirnar reyndar nokkuð á eftir en mjög fallegur völlur,“ sagði Lopez en hún var í fimmtíu kvenna hópi á vegum Eagle golfferða. Árni Þór Hallgrímsson sagði ferðina hafa verið vel heppnaða þó veðurguðirnir hafi sett smá strik í reikninginn. Þegar kylfingur.is hitti á hópinn á Urriðavelli í vikunni var á dagskránni að ljúka ferðinni í Bláa Lóninu.
Nancy sem er nú 69 ára, vann 48 LPGA golfmót á ferlinum og þar af 3 risamót. Hún en hún gerðist atvinnukylfingur árið 1977 og sló í gegn ári síðar þegar húnn vann níu sinnum á LPGA mótaröðinni þar af fimm mót í röð. Hún var valin kylfingur ársins fjórum sinnum og var tekin inn í Frægðarhöll golfsins, LPGA Hall of Fame árið 1987, þá yngsti kylfingurinn til að hljóta þann heiður.
Við spurðum hana hvort hún léki enn golf. „Já, ég spila golf í hverri viku, alla vega tvisvar. Ég spila líka oft í fyrirtækja- og kynningarmótum á vegum LPGA mótaraðarinnar.“
Lopez býr í Palm. City í Flórída þar sem veðurguðirnir eru nær alltaf í góðu skapi. Hún var vel dúðuð á Urriðavelli, í hlýjum fatnaði og með húfu.
Hún segist hafa hætt keppnisgolfi 2005 eftir fjörutíu ára keppnisferil en hvað finnst henni um bestu golfkonurnar í dag?
„Þær eru frábærar. Það eru margar góðar kóresku golfkonurnar en svo er Nellý (Nelly Korda) auðvitað þarna á toppnum en samkeppnin er hörð. Ég auðvitað er ánægð þegar bandarísk kona er á toppnum og bandarískar vinna.“
Hvað finnst þér um kylfur og búnað í dag miðað við þegar þú varst að byrja sem atvinnukylfingur?
„Þetta er mikil breyting og má ekki vera miklu meiri svo það þurfi ekki sífellt vera að lengja golfvellina,“ sagði hin viðkunnanlega Nancy Lopez sem gaf sér tíma til að spjalla við ungar golfkonur á Urriðvelli, gaf þeim og fleirum eiginhandaráritanir og spjallaði.
Árni hjá Eagle golfferðum sagði ferðina hafa gengið vel þrátt fyrir veðrið en hann hefur í mörg ár tekið á móti erlendum kylfingum til Íslands og farið með þá víða í golf og á ferðamannastaði.

Nancy með ungum íslenskum golfstelpum á Urriðavelli.

Árni hjá Eagleferðum með Lopez.



