Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Nýliðinn vann 2,375 milljónir dala með síðasta högginu
Koivun (t.h.) og Clark horfa á eftir lokahöggi þess fyrrnefnda sem endaði næst holu.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 28. nóvember 2026 kl. 08:23

Nýliðinn vann 2,375 milljónir dala með síðasta högginu

Hinn 21 árs gamli bandaríski nýliði á PGA mótaröðinni Jackson Koivun gerði sér lítið fyrir og hafði betur gegn þremur risamótameisturum í Skins Game í Flórída á föstudag. Koivun hlaut 2.375.000 Bandaríkjadali í verðlaunafé, tæplega 60% af heildarverðlaunafé mótsins.

Koivun keppti við þá Brooks Koepka, Justin Thomas og Wyndham Clark á Atlantic Fields-golfvellinum en alls voru fjórar milljónir dala í verðlaunafé. Þetta er hærri upphæð en vinningsfé hans úr öllu mótum tímabilsins.

Tvær milljónir dala fyrir eitt högg

Mikil spenna var á lokaholunum en Justin Thomas átti þess kost að vinna eina milljón dala á 17. holu. Pútt hans geigaði og færðust verðlaunin yfir á 18. holu þar sem tvær milljónir dala voru undir.

Hvorki Koivun né Wyndham Clark náðu að nýta fuglafæri sín á lokaholunni og því þurfti aukakeppni til að útkljá mótið. Keppt var um hver kæmist næst holu af 108 metra færi.

Thomas og Clark hittu ekki flötina en Koepka kom boltanum inn á flötina, rúmlega sex metra frá holu. Koivun sló síðastur og þurftu starfsmenn mótsins að mæla fjarlægð boltanna frá holunni. Bolti Koivuns reyndist örlítið nær og þar með voru tvær milljónir dala hans.

Koivun gerðist atvinnukylfingur í júní á þessu ári eftir glæsilegan feril í bandaríska háskólagolfinu. Hann vann sitt fyrsta mót á PGA mótaröðinni, 3M Open, í júlí í aðeins þriðja móti sínu sem atvinnukylfingur. Þar hafði hann betur gegn Scottie Scheffler. Koivun var einnig í úrvalsliði Bandaríkjanna í Forsetabikarnum í ár þar sem frammistaða hans vakti athygli. Margir telja hann efnilegasta kylfing Bandaríkjanna frá því Tiger Woods kom fram á sjónarsviðið.

Skins Game var fyrst haldið árið 1983 en mótið var endurvakið á síðasta ári eftir 17 ára hlé. Í ár var horfið aftur til hefðbundins keppnisfyrirkomulags þar sem hver hola hefur ákveðið verðgildi. Verði tveir eða fleiri kylfingar jafnir á holu færast verðlaunin yfir á næstu holu.

Skipting verðlaunafjár:

Jackson Koivun

2.375.000 dalir

Brooks Koepka

700.000 dalir

Justin Thomas

475.000 dalir

Wyndham Clark

450.000 dalir