Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Vallarframkvæmdir í Öndverðarnesi
Breytingar á 3. braut, stækkun á flöt og braut breikkuð.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 27. nóvember 2026 kl. 09:45

Vallarframkvæmdir í Öndverðarnesi

Vallarframkvæmdir hafa staðið yfir í Öndverðarnesi á nokkrum brautum m.a. á þriðju braut en í fyrra voru stór tré hægra megin fjarlægð sem opnuðu brautina. Nú var brautin breikkuð og flötin stækkuð.

Kanturinn hægra megin á 7. braut var lagaður og undirbúningsvinna fyrir færslu á flöt en þessi hola er án efa sú erfiðasta á vellinum og ekki ólíklegt að því verði fagnað að henni verði breytt í par 5.

Kantur hægra megin á 8. braut var einnig lagaður en einnig voru gerðar breytingar á brautinni í fyrra sem þóttu heppnast vel en það fólst í því að létta á trjágróðri hægra megin nærri flöt.

Skurður milli 10. brautar og æfingasvæðis var snyrtur og svæði milli 13. og 17. brautar snyrt og gerður skurður til að hleypa vatni af svæðinu. Bjarki Harðarson hönnuður frá Plank ehf stýrði gröfunni sem BYGG hefur lánað klúbbnum til verksins.

Eins og kom fram nýlega í frétt á kylfingur.is gekk reksturinn vel á árinu og nýr formaður tók við.

Áfram var haldið með að létta aðkomu að 8. flötinni.

Svæðið milli 13. og 17. brautar.