Sigurbjörn og Guðmundur góðir í Portúgal
Fjórir íslenskir heldri kylfingar léku á Portúgalska meistaramóti eldri kylfinga í síðustu viku og fór mótið fram á Golf do Estoril. Keppendur voru áttatíu víðs vegar að úr heiminum.
Íslendingarnir fjórir voru Sigurbjörn Þorgeirsson, Guðmundur Rúnar Hallgrímsson, Frans Páll Sigurðsson og Helgi Birkir Þórisson. Bjössi og Rúnar léku vel og enduðu ofarlega en hér eru skor kappanna:
Sigurbjörn endaði 13. sæti á +10 (72-73-72).
Guðmundur Rúnar varð í 20-22. sæti á +13 (73-75-72).
Frans Páll endaði í 57. sæti á +33 (80-80-80).
Helgi Birkir varð 74. sæti +53 (91-86-83).



