Fréttir

Tveir risatitlar hjá Xander á þremur mánuðum
Mánudagur 22. júlí 2024 kl. 09:13

Tveir risatitlar hjá Xander á þremur mánuðum

Xander Schauffele sigraði á OPNA mótinu sem lauk á Troon golfvellinum í Skotlandi í gær. Hann fékk fjóra fugla á síðustu níu holunum og tryggði sér sinn annan risatitil á síðustu þremur mánuðum en hann vann PGA risamótið í vor.

Veðrið setti svip sinn á mótið en Bandaríkjamaðurinn endaði á níu höggum undir pari og lék frábært golf á lokahringnum og vann með tveggja högga mun. Englendingurinn Justin Rose og Bandaríkjamaðurinn Billy Horschel deildu öðru sætinu á sjö undir pari.

Tveir af þekktustu kylfingum heims, þeir Rory McIlroy og Tiger Woods, komust ekki í gegnum niðurskurðinn.
Staðan.