Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Þrír íslenskir kylfingar í Mekka golfsins
Markús, Veigar og Logi á Swilkan brúnni við 18. braut á Gamla vellinum í St. Andrews.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
mánudaginn 9. júní 2025 kl. 13:21

Þrír íslenskir kylfingar í Mekka golfsins

Þrír íslenskir kylfingar voru meðal þátttakenda á St. Andrews Links Trophy um síðustu helgi en mótið er eitt virtasta á mótalista áhugamanna. Logi Sigurðsson, Veigar Heiðarsson og Markús Marelsson voru fulltrúar Íslendinga í Mekka golfsins, St. Andrews.

Leiknar voru 36 holu höggleikur fyrir niðurskurð, þann fyrri á Jubilee vellinum og síðan á Gamla vellinum, Old Course. Fimmtíu bestu komust áfram og náðu íslensku strákarnir ekki inn í þann hóp.

Veigar lék á einu höggi yfir pari 36 holurnar, fyrri hringinn á pari og seinni einn yfir og var þrjú högg frá niðurskurðinum en hann var óheppinn á síðustu þremur brautunum sem hann lék allar á skolla, eða +3 en hann var á tveimur undir á seinni hringnum þegar þrjár brautir voru eftir.

Örninn 2025
Örninn 2025

Logi Sigurðsson  endaði á +2, 76-70 en hann lék fyrri hringinn á fjórum yfir en Gamla völlinn lék hann á tveimur undir pari.

Markús var í miklu óstuði fyrri hringinn sem hann lék á 84 höggum en þann seinni kom hann inn á 76 höggum, samtals 15 yfir.

Skotinn Cameron Adam og Írinn Jóhn Doyle enduðu jafnir á 17 undir pari en Skotinn hafði betur í bráðabana.