Fréttir

Þórður hættir í Kiðjabergi - leitað að nýjum framkvæmdastjóra
Þriðjudagur 28. október 2025 kl. 10:52

Þórður hættir í Kiðjabergi - leitað að nýjum framkvæmdastjóra

Þórður Rafn Gissurarson, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Kiðjabergs  stígur til hliðar 31. desember næstkomandi eftir þriggja ára starf hjá klúbbnum. „Á þessum tíma hefur hann unnið ötullega að uppbyggingu og þróun vallarins og starfsemi klúbbsins. Ennfremur hefur Þórður átt stóran þátt í að efla bæði rekstur og félagsanda í Kiðjabergi, segir í tilkynningu frá klúbbnum.

Stjórn Golfklúbbs Kiðjabergs vill færa Þórði innilegar þakkir fyrir hans störf, metnað og jákvætt framlag á undanförnum árum. Leit að nýjum framkvæmdastjóra er hafin, og verður unnið að því að tryggja mjúkt og farsælt umskiptaferli á næstu vikum.

Þórður segir að veran í Kiðjabergi hafi verið afar ánægjuleg og lærdómsrík:

„Það hefur verið einstök upplifun að fá að starfa með frábæru fólki og taka þátt í því að þróa og efla starfsemi Golfklúbbs Kiðjabergs. Klúbburinn hefur verið í stöðugum vexti og það hefur verið bæði skemmtileg og gefandi áskorun að taka þátt í þeirri vegferð. Sérstaklega var ánægjulegt að vera hluti af því að Kiðjabergsvöllur hlaut nafnbótina Besti golfvöllur á Íslandi 2024 af World Golf Awards. Ég er þakklátur fyrir þann tíma sem ég hef átt hér og þann mikla stuðning sem ég hef notið. Nú er þó kominn tími á breytingar og nýjar áskoranir. Ég mun að sjálfsögðu styðja nýjan framkvæmdastjóra í umskiptunum og óska Golfklúbbi Kiðjabergs alls hins besta í framtíðinni.“

Guðmundur Ásgeirsson, formaður stjórnar Golfklúbbs Kiðjabergs, segir að stjórn kunni Þórði miklar þakkir fyrir hans framlag:

„Þórður hefur unnið afar öflugt starf hér í Kiðjabergi og lagt sig fram um að efla bæði rekstur, þjónustu og félagsanda innan klúbbsins. Hann hefur leitt starfið af fagmennsku, jákvæðni og einlægum áhuga á fólkinu sem stendur að baki Kiðjabergi. Við þökkum honum kærlega fyrir samstarfið og óskum honum alls hins besta á nýjum vettvangi.“

Þórður Rafn var afrekskylfingur á yngri árum og varð Íslandsmeistari í golfi 2015 þegar leikið var á Akranesi. Hann reyndi síðan við atvinnumennsku en þaðan lá leið hans í Kiðjaberg.