Ryder Cup og DP mótaröðin á Stöð 2 sport
Besta golfið í Evrópu og Ryder Cup verða á Stöð 2 Sport en Sýn hf. og European Tour Productions hafa undirritað samning um að Stöð 2 Sport verði heimili DP World Tour næstu árin. Mótaröðin, sem hét áður European Tour, var á árum áður reglulega á dagskrá íþróttastöðva Sýnar og snýr nú aftur. Útsendingar frá DP World Tour eru þegar hafnar á Stöð 2 Sport.
Þá var einnig samið um sýningarrétt Ryder-bikarkeppninnar og verða næstu keppnir sýndar á Stöð 2 Sport. Um er að ræða einn stærsta viðburð ársins í alþjóðlegu golfi en í keppninni etja saman kappi bestu kylfingar Bandaríkjanna annars vegar og Evrópu hins vegar.
Næsta mót fer fram á Bethpage Black Course vellinum í New York í Bandaríkjunum, dagana 25.-28. september.
Ryder-keppnin fer fram annað hvert ár en árið 2027 verður 100 ára afmælismót og fer það fram á Adare Manor í Írlandi.
Eiríkur Stefán Ásgeirsson, íþróttastjóri Sýnar hf.:
„Það er mikið ánægjuefni að DP World Tour og Ryder Cup verði aftur á dagskrá Stöðvar 2 Sports og við hlökkum til að halda áfram að færa áskrifendum golf í hæsta gæðaflokki.
Risamótin fjögur hafa verið á dagskrá sjónvarpsstöðva Sýnar undanfarin ár og eru nú aðeins fáeinar vikur í að fyrsta risamót ársins, Masters, verði á dagskrá Stöðvar 2 Sports.“