Golfexpo
Golfexpo

Fréttir

Óskar fór holu í höggi á Spáni
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
miðvikudaginn 4. mars 2026 kl. 06:29

Óskar fór holu í höggi á Spáni

Suðurnesjakylfingurinn Óskar Þórmundsson gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á Spáni á dögunum. Óskar var við leik á Escuela de Golf de Elche, par þrjú 18 holu völlur.

Óskar mundaði fleygjárnið á 13. holunni sem er 94 metra löng, varin með glompu fyrir framan og vatni fyrir aftan flöt.

„Þetta var bara ljúft og gott högg, boltinn flaug níutíu metra og small svo í holu,“ sagði Óskar í stuttu spjalli við kylfing.is.

Óskar er að nálgast atvinnumennsku í golfi en hann er í stórum hópi Íslendinga sem hafa sinnt golfíþróttinni vel á eftirlaunaaldri.