Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Nýr golfskáli og fyrsta draumahöggið á Rifi
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 12. nóvember 2026 kl. 13:37

Nýr golfskáli og fyrsta draumahöggið á Rifi

Nýr golfskáli er risinn við nýja golfvöllinn á Rifi. Við sögðum frá opnun þessa glæsilega 9 holu vallar fyrir nokkru síðan en kylfingar léku þar langt fram á haust. Eins og við greindum frá stóðu framkvæmdir yfir við völlinn síðustu 6-7 ár með mikilli sjálfboðavinnu en líka miklum stuðningi sveitarfélagsins og fyrirtækja á svæðinu.

Fyrsta draumahöggið á vellinum leit dagsins ljós á 2. braut 30. ágúst þegar Þórður Kristleifsson fór holu í höggi.

Hér er pistill kylfings.is frá því í haust.