Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Hola í höggi í Dúbaí
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 12. nóvember 2026 kl. 14:10

Hola í höggi í Dúbaí

Niklas Nörgaard fór holu í höggi á 13. holu á Jarðarvellinum í Dúbaí á lokamóti DP mótaraðarinnar sem hófst í morgun. Hann fékk í verðlaun eina milljón flugmílur með Emirates.

Daninn notaði 6-járn á 185 metra langri brautinni. Á myndskeiði sem var tekið á síma sést boltinn lenda nokkra metra frá holu, skoppa og rúlla svo ofan í. Að sögn Danans var kylfusveinn hans að gantast með málið áður en hann sló, að hann gæti unnið „uppfærslu“ á flugið ef hann setti ofan í. „Ég hitti boltann ekki vel en hann fór ofan í,“ sagði Niklas.

Það er mikil spenna í mótinu og ljóst að fleiri en einn og tveir geta hampað glæsilega vinningnum á sunnudagskvöld, að vinna Kapphlaupið til Dúbaí, eða Race to Dubai. Eftir fyrsta daginn er Rory Mcilroy í bestri stöðu eftir fyrsta hringinn á -3 og jafn í 3. sæti en hann er í 2. sæti stigalistans. Spánverjinn Eugenio Chacarra lék á pari og er í 23.-27. sæti. Hann er í efsta sæti stigalistans. Patrick Reed er í 3. sæti stigalistans en hann byrjaði fyrsta hringinn á þremur yfir pari, sex höggum verri en Rory.

Staðan.

Hola í höggi Sjáiði þetta vipp hjá Jon Rahm. Eru allir Spánverjar svona góðir í stutta spilinu? Patrick Reed var „plöggaður“ í glompu á 12. holu og leysti það verkefni á snilldarlegan hátt. Boltinn hjá Rory lendir í holunni en ekki ofan í.