Feðgarnir mættu mulningsvélinni á Spáni
Knattspyrnumaðurinn Gylfi Sigurðsson hitaði m.a. upp á golfvellinum í hitanum á Spáni fyrir komandi landsleiki gegn Búlgarðiu og Lúxemborg. Andstæðingarnir voru engir meðal-Jónar í golfíþróttinni en þó alla vega einn Jón.
Gylfi var á La Finca golfvellinum á Spáni með föður sínum, Sigurði Aðalsteinssyni sem er hörku kylfingur og m.a. leikið með öldungalandsliðinu. Siggi er með lága forgjöf en það er Gylfi líka. Andstæðingarnir eru fyrrverandi handbolta landsliðskappar úr mulningsvél Vals, þeir Jón Pétur Jónsson og Stefán Gunnarsson. Jón Pétur er eigandi golfverslunarinnar Örninn.
Kylfingur.is heyrði lítillega í Jóni sem sagði að þetta hafi verið óvænt keppni hjá tveimur sterkum liðum. „Við þurfum ekki að tala um skorið en leikar enduðu jafnir,“ sagði Jón Pétur.



