Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Lowry vann aftur Írska mótið 27 árum síðar
Trump afhenti Lowry bikarinn. Mynd/Getty.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 13. september 2026 kl. 21:12

Lowry vann aftur Írska mótið 27 árum síðar

Shane Lowry vann sinn annan sigur á Írska meistaramótinu, Amgen Irish Open, með frábærri spilamennsku á Trump International golfvellinum í Doonbeg en mótið er hluti af DP Evrópumótaröðinni.

Þessi 39 ára heimamaður hafði fjögurra högga forskot fyrir lokahringinn og kom inn  ámsjö höggum undir pari, eða 63 höggum, til að ljúka leik á samtals 23 höggum undir pari og bæta við sig enn einum sigrinum á heimavelli eftir eftirminnilegan sigur sinn sem áhugamaður árið 2009 í County Louth.

Lowry sem vann OPNA mótið (The OPEN) á Portrush vellinum í N-Írlandi árið 2019 lauk keppni ellefu höggum á undan Bandaríkjamanninum Patrick Reed og Joaquín Niemann frá Chile og sló þar með met yfir stærsta sigur á mótinu sem Bernhard Langer setti á Portmarnock golfklúbbnum árið 1987, með því að setja niður níu metra pútt fyrir fugli á síðustu flötinni.

Hann er fimmti leikmaðurinn frá Írska lýðveldinu til að vinna Írska meistaramótið og sá fyrsti síðan hann sigraði árið 2009. Þetta er jafnframt sjöundi titill hans á DP World Tour mótaröðinni í hans 304. móti, fjórum árum og tveimur dögum eftir síðasta sigur hans á BMW PGA meistaramótinu árið 2022.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna og eigandi Doonbeg-golfsvæðisins, afhenti honum verðlaunagripinn, en þetta er í fyrsta sinn í sögunni sem forseti Bandaríkjanna er viðstaddur mót á DP World Tour mótaröðinni. Trump kom með stæl til Írlands og flaug forsetavélin, Airforce One, yfir golfsvæðið á leið til lendingar á flugvellinum. Hann kom svo til golfvallarins í stórri þyrlu sem flug að golfsvæðinu á meðan keppni stóð yfir. Í verðlaunaafhendingunni lofaði hann móttökurnar í Írlandi og sagði svo í lokin að hann hefði verið beðinn um að taka af tolla af írsku vískí í Bandaríkjunum. Hann sagðist myndi gera það!

Lowry brosti breitt eftir sigurinn á heimavelli en árið hefur ekki verið mjög gott hjá kappanum. Þessi sigur breytir því.