Fréttir

Lee sigraði Lee6 í bráðabana á Evian
Minjee Lee lék frábærlega í dag og tryggði sér sigur
Nökkvi Gunnarsson
Nökkvi Gunnarsson skrifar
sunnudaginn 25. júlí 2021 kl. 17:20

Lee sigraði Lee6 í bráðabana á Evian

Minjee Lee frá Ástralíu sigraði á Evian risamótinu sem lauk í dag í Frakklandi.

Jeongeun Lee6 frá Suður Kóreu hafði 5 högga forystu á Yealimi Noh frá Bandaríkjunum fyrir lokahringinn.

Minjee Lee var heilum 7 höggum á eftir Lee6 þegar farið var af stað í lokahringinn í morgun. Hún lék frábærlega í dag á 7 höggum undir á meðan Lee6 lék á pari.

Noh lék á 4 höggum undir pari í dag en sat eftir með sárt ennið eftir að hafa klikkað á 3 metra pútti fyrir fugli á síðustu flötinni.

Í bráðabananum fékk Lee6 skolla á meðan Minjee Lee fékk fugl og tryggði sér sigur og sinn fyrsta risatitil.

Leona Maguire frá Írlandi lék á 61 höggi í dag og jafnaði besta hring sem leikinn hefur verið á risamóti kvenna og hífði sig upp í 6. sæti.

Lokastaðan í mótinu