Guðrún Brá í 3. sæti - Haraldur höggi frá niðurskurði
Guðrún Brá Björgvinsdóttir endaði 3. sæti á NTT Data Pro-Am móti í S-Afríku um helgina. Haraldur Franklín var við leik á sama golfsvæði og vantaði eitt högg upp á niðurskurðinn en hann lék á -3.
Veðurguðirnir voru í óstuði á hinu þekkta Fancourt golfsvæði í George og þurfti að skera einn dag af hjá báðum aðilum, konum og körlum.
Guðrún Brá lék stöðugt golf við erfiðar aðstæður, á einu höggi undir pari og fékk hún tæplega 1,5 millj. kr. fyrir árangurinn. Mótið er á Sunshine mótaröðinni og þar sem þetta var ProAm mót fengu áhugamenn að spreyta sig með konunum og fengu þær allar einn kylfing með sér. Í liðakeppninni endaði Guðrún og hennar félagi í 2. sæti, höggi á eftir sigurliðinu.
Guðrún sagði í stuttu spjalli við golf.is að aðstæður í lokahringnum hafi minnt hana á íslenska vindinn sem hún þekkir vel. Hún hafi því reynt að hafa leikskipulag í takti við það og það hafi gengið vel. Fugl á síðustu holunni hafi verið skemtilegur bónus.
Guðrún mun leika á fjórum mótum í S-Afríku en fyrstu mótin sem hún mun leika í á LET mótaröðinni, þeirri efstu í Evrópu, verða í apríl.
Haraldur Franklin lék stöðugt og gott golf og vantaði bara eitt högg upp á að komast í gegnum niðurskurðinn. Hann fékk skolla á 16. holu á seinni hringnum en svo fugla á 17. og 18. holu en vantaði högg.
Haraldur var að kljást við veikindi í mótinu og því er þetta mjög góður árangur hjá honum.


