Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Gísla fagnað hjá Keili
Miðvikudagur 19. ágúst 2026 kl. 14:54

Gísla fagnað hjá Keili

Golfklúbburinn Keilir hélt móttöku fyrir Óliver Elí Björnsson í tilefni af sögulegum sigri hans á Opna breska áhugamannamóti piltaí síðustu viku. Óliver Elí varð fyrstur íslenskra kylfinga til að vinna mótið, sem er eitt sterkasta og virtasta unglingamót heims.

Meðal gesta var stjórnarfólk GSÍ og bæjarstjóri Hafnarfjarðar, ásamt stjórnendum Golfklúbbsins Keilis, fjölskyldu, vinum og félögum Ólivers.

Framundan er annað stórt verkefni, en Óliver Elí hefur verið valinn í lið meginlands Evrópu fyrir Jacques Léglise Trophy. Þar mætast níu af bestu kylfingum Evrópu 18 ára og yngri, og leika gegn úrvalsliði Bretlands og Írlands. Mótið fer fram dagana 21.-22. ágúst á The Island Golf Club á Írlandi. Óliver verður annar Íslendingurinn til að leika í mótinu, á eftir Gísla Sveinbergssyni árið 2015.