Georg 79 ára fór tvisvar holu í höggi á 4 dögum
Hinn 79 ára Georg Guðjónsson, prentari og kylfingur úr Golfklúbbi Flúða, gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi tvisvar sinnum á fjórum dögum í golfferð á La Gomera nú um áramótin. „Ég kann nú ekki mikið í golfi,“ sagði hann hógvær í spjalli við kylfing.is.
Georg var í golfferð með Hrafnhildi Helgadóttur eiginkonu sinni á La Gomera yfir áramótin en þau hafa verið dugleg að fara í golfferðir til útlanda síðan þau hófu golfleik um sextugt. Það er draumur allra kylfinga að fara holu í höggi en að gera það tvisvar á fjórum dögum er afar sjaldgæft.
„Þetta er skemmtilegur golfvöllur,“ segir Georg sem náði fyrra draumahögginu 7. janúar á 11. braut. „Ég var með hálfvita og þetta eru einhverjir 110 metrar upp í móti. Ég hitti boltann ágætlega en maður sér ekki þegar boltinn lendir en það var fólk sem sá hann fara í holu,“ segir Georg en fjórum dögum síðar var hann aftur með lukkuhögg. Þá var hann með Stjána pípara sem hafði óskað eftir því að fá að vera í holli með svona lukkukylfing. Og viti menn! Annað draumahögg leit dagsins ljós. Þá sló Georg með 8-járni á 4. braut en hún er um 100 metra löng en liggur öll niður í móti. „Ég sá ekki heldur þegar þessi fór í holu. Það er gróður fyrir framan teiginn. Stjáni sagði að þetta hafi verið mjög gott högg en við sáum einn bolta um rétt við holu. Hann sagði mér að kíkja í holuna og viti menn, þar var minn bolti en bolti eiginkonunnar var um 30 sm frá,“ sagði heppni kylfingurinn sem fór holu í höggi í fyrsta sinn fyrir nokkrum árum á Costa Ballena. Þá ákvað hann að hafa það bara fyrir sig og sagði ekki frá því, hvað þá að skrá sig í Einherjaklúbbinn. „Nú sagði Siggi Hafsteins (fararstjóri) að ég yrði að skrá mig í klúbbinn, annars myndi hann gera það,“ sagði Georg aðspurður út í Einherjaklúbbinn.
Georg er með 23 í forgjöf og er í Golfklúbbi Flúða en var í mörg ár líka í Oddi. Hann segist ekki spila mikið á Íslandi því hann sé að vinna alla virka daga í Litlaprenti sem synir hans stýra núna en hann starfar þó ennþá.
„Við förum eitthvað um helgar,“ segir Georg en hann fer oft til útlanda í golfferðir. Í vor eru þau hjónin að fara á Nova St. Petri og svo til Islantilla í haust. Hann hefur farið 7-8 sinnum til La Gomera og þá hefur hann farið á fleiri staði eins og til Bandaríkjanna, Belek á Tyrklandi, í skipaferð til Dubai og líka um Miðjarðarhafið. „Það er gaman að spila golf á hinum ýmsu völlum í góðu veðri,“ segir kappinn en þau hjónin voru keppnisfólk á skíðum í gamla daga. „Þegar við urðum eldri ákváðum við að fara í þetta „ellisport“ og sjáum ekki eftir því.“
Georg var ekki sá eini með draumahögg í áramótaferðinni á La Gomera því Heimir Heimsson og Jón Ingi Björnsson fóru holu í höggi á 4. og 11. braut. Jón Ingi náði draumahögginu sama dag og þegar Georg náði því í seinna skiptið. Sannarlega draumakylfingar á La Gomera.


