Fréttir

Arnfríður og Skúli með flesta punkta og Aron á besta skorinu í Borgarnesi
Sunnudagur 28. júlí 2024 kl. 11:27

Arnfríður og Skúli með flesta punkta og Aron á besta skorinu í Borgarnesi

Kylfingar fjölmenntu í Opna Coca Cola mótið á Hamarsvelli í Borgarnesi í gær en 142 mættu til leiks og skiluðu góðu skori.

Arnfríður Ingibjörg Grétarsdóttir úr GSE og Skúli Sigurðsson úr GM voru efst og jöfn með 42 punkta og þau Margrét K. Guðnadóttir úr GB og Breki Þór Hermannsson úr GL voru með 40 punkta bæði í 3.-4. sæti.

Aron Skúli Ingason úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar lék á besta skori án forgjafar, 73 höggum.

Veitt voru nándarverðlaun og dregið úr skorkortum en sjá má hverjir voru hin heppnu og ítarlegri úrslit í frétt GB frá mótinu hér.