Lét 8-járnið duga fyrstu árin á golfferlinum.
Anna Eyrún Halldórsdóttir er kylfingur dagsins. Hún er fædd og uppalin á Mýrum í Hornafirði og býr á Hornafirði í dag. Fyrir utan golfið finnst henni gaman að prjóna og mörgum kæmi kannski á óvart að hún er mikil skíðakona, hún hefur einmitt sett stefnuna á Austurríki í skíðaferð á sjötugs afmælinu á næsta ári. Hún byrjaði í golfi til að fylgja eiginmanni sínum heitnum, Vífli Karlssyni en þau fóru í margar golfferðirnar saman, bæði innanlands og utan landsteinanna.
Anna er kylfingur dagsins.
Hvenær byrjaðir þú í golfi og hvernig gerðist það?
Ég byrjaði að fylgja manninum mínum í golfi. Hann keypti sér golfsett og með því fylgdi ein kvennakylfa sem var nr 8 og hún dugði mér nú í nokkur ár. Það er dálítið skrítið að núna á allra síðustu árum langar mig að lækka forgjöfina aðeins. Það má láta sig dreyma.
Helstu afrek í golfinu?
Að gefast ekki upp þegar gengur illa.
Hvað er það neyðarlegasta sem þú hefur lent í á golfvellinum?
Ég man nú ekki eftir neinu sérstöku.
Hver er „frægasti“ kylfingurinn sem þú hefur leikið með?
Halldór Sævar Birgisson er stolt okkar Hornfirðinga í golfinu.
Ertu hjátrúarfull/ur hvað varðar golf?
Nei, alls ekki.
Hvað er það sem þú þarft mest að bæta í þínum golfleik?
Brautarhöggin og stutta spilið. Væri líka sátt við að hafa smá snefil af keppnisskapi. Ég er í golfinu ánægjunnar vegna, félagsskaparins og útiverunnar.
Aldur: 69 ára
Klúbbur: Golfklúbbur Hornafjarðar
Forgjöf: 31,9
Uppáhaldsmatur: Þorskhnakkar vel útfærðir
Uppáhaldsdrykkur: Kaffið er gott
Uppáhaldskylfingur: Logi Sigurðsson hjá GS er mjög flottur (og pabbi hans líka) og á vonandi eftir að ná langt.
Þrír uppáhaldsgolfvellir: Silfurnesvöllur, Urriðavöllur, Kiðjaberg og erlendis er það Valle Del Este á Spáni.
Þrjár uppáhaldsgolfbrautir á Íslandi: 8. braut á Silfurnesvelli, 2 braut á Oddinum og sú fallegasta er 8 brautin í Borgarnesi
Erfiðasta golfholan: Þær eru nú ansi margar
Erfiðasta höggið: Upphafshöggið á 1. teig í móti
Besta skor: 45 högg á 9 holum og 97 högg í meistaramóti á Silfurnesvelli á afmælisdegi Vífils árið 2019.
Besti kylfingurinn: Tiger Woods
Golfpokinn
Dræver: Eldgamall Ping (Góð hugmynd að afmælisgjöf krakkar mínir, verð sjötug í febrúar.)
Brautartré:
þrjú tré
Járn:
Áttan
Fleygjárn:
Wedge
Pútter: Hef átt 2 púttera á þessum 30 árum. Kallaði þann fyrri Bleika pardusinn en á núna pútter frá Golfskálanum, man ekki nafnið og kem því upp um mig með að merkjakona er ég ekki.
Hanski: Þarf að hafa gott grip
Skór: Ecco hafa reynst vel.