Kylfukast

Kylfukast: Sjálfstætt Skotland.....
Mánudagur 29. september 2014 kl. 00:15

Kylfukast: Sjálfstætt Skotland.....

Það væri áhugavert að vita hversu margir íslenskir kylfingar hafa leikið golf í Skotlandi. Ég er hlutdrægur í mati mínu en Skotland er Mekka golfsins. Enginn alvöru kylfingur ætti að missa af því á lífsleiðinni að ferðast til Skotlands og leika golf.  Við búum svo vel að geta ferðast í beinu flugi til helstu borga Skotlands.  Flugið tekur ekki nema rétt um 2 klukkustundir og á öðrum tveimur til þremur er hægt að koma sér útúr flugstöðinni og út á golfvöll. 

Sérkenni Skotlands eru strandvellir (e. links). Þeir eru byggðir milli sandhóla eru harðir með stórar flatir og djúpar glompur.  Á völlunum er vindasamt og ekki er óalgengt að  besta verkfærið í 60 metra innáhögg sé pútterinn.

Úrvalið af góðum strandvöllum er mikið. Sé allt lagt saman, gæði valla, gistingar, veitingahúsa og heildarupplifun er St. Andrews yfirburðasvæði.  Í og við bæinn sjálfan eru um 10 strandvellir og í næstu bæjum sem stutt er að ferðast til annað eins og rúmlega það.  Kaupa má viku eða þriggja daga aðgang að völlunum í bænum. Gamli völlurinn (e. Old Course) er þar undanskilinn.  Enginn ætti þó að sleppa því að taka þátt í lottóinu (e. ballott) um teigtíma á Gamla vellinum.  Það er einfalt og niðurstöðurnar birtar á netinu. Vallargjaldið er á bilinu 20 – 40 þúsund eftir árstíma, sem verður að teljast viðunandi fyrir einstaka upplifun.  Völlurinn er lokaður alla sunnudaga.

Samanborið við golfferðir til heitari landa eru Skotlandsferðirnar dýrari.  Oftast er dvalið í skemmri tíma, þrjá til sex daga. Veðrið er líka mun nær því sem það er á Íslandi.  Í mars og október fást oft betri kjör á skoskum golfvöllum en veðrið er lotterí.  Ég hef leikið golf í báðum þessum mánuðum í 20 stiga hita og logni.  Einnig í 5 stiga hita, hávaðaroki og rigningu.

Og bara svo það sé á hreinu þá erum við að tala um Skotland ekki England. Tvennt ólíkt. Hvað golf varðar þá er Skotland sjálfstætt og hefur alltaf verið.

Með golfkveðju,
Margeir Vilhjálmsson