Royal Ostend – einstakur links-völlur við belgísku ströndina
Royal Ostend Golf Club er eini eiginlegi strandvöllurinn (links) í Belgíu og liggur í stórbrotnu, vernduðu sandöldulandslagi á belgísku ströndinni við Norðursjó. Frá miðborg Brussel er um klukkutíma akstur og heimsókn á þennan eina strandvöll landsins er vel þess virði.
Þegar maður kemur á svæðið fær maður strax góða tilfinningu fyrir því sem koma skal. Klúbbhúsið er virðulegt og móttökur í afgreiðslunni eru góðar. Tveir blaðamenn kylfings.is voru mættir á fyrsta teig snemma dags og rétt áður en fyrsta teighöggið var slegið vorum við beðnir um að smella mynd af nokkrum öðrum erlendum gestum frá Slóveníu sem voru að fara að spila völlinn á leið sinni til Hollands til að fylgjast með Solheim-bikar kvenna í golfi.
Völlurinn er par 70 og ekki nema rúmlega 5500 metrar af öftustu teigum. Þegar rennslið á brautunum er eðlilegt er þetta því ekki mjög langt en þegar við Björn Malmquist lékum völlinn í byrjun september var búið að vinna talsvert við brautirnar sem höfðu margar brunnið í miklum þurrki og hita sumarsins. Sjá meira um það síðar í pistlinum.
Sjávarilmur við fimmtu
Strandvallaupplifunin er aðeins minni á fyrstu fjórum holunum því trjágróður afmarkar brautirnar hægra megin en þegar komið er á 5. teig blasir við manni sjórinn á hægri hönd og meira strandvallaútlit. Fimmta holan er sú erfiðasta á vellinum og er 400 metrar af aftasta teig og 370 af klúbbteigum. Sjötta holan heitir eftir frægri par 3 braut á Troon-vellinum í Skotlandi, „Postage stamp“ eða „Frímerkið“. Þetta er stutt hola, aðeins um 130 metrar, en hún liggur aðeins hærra í landinu og er umkringd fimm djúpum glompum. Virkilega flott hola.
Á sjöunda teig er gott að anda að sér sjávarloftinu sem kemur úr Norðursjónum og nýta það til að reyna við fugl á brautinni sem er par 5, um 450 metrar af klúbbteigum. Það þarf tvö löng högg til að ná inn á flöt í tveimur en góður möguleiki með stuttu og nákvæmu þriðja höggi.
Áttunda holan er par 3 þar sem teigurinn er uppi í hlíð og slegið niður á litla flöt 130 metra frá, mjög flott braut þar sem gaman er að standa á teignum hátt uppi. Þar er mjög lítið svigrúm nema fyrir gott högg því flötin er umkringd fimm glompum.
Næstu brautir eru fínar nema pínu sérstakt á 12. holu sem er stutt par 4, þar sem upphafsteigurinn er beint fyrir aftan 11. flötina og því slegið yfir hana.
Vandræði vegna hita og þurrka
Á lokakaflanum voru brautir á 14.-16. holu allar í vinnslu þar sem búið var að vinna þær niður í mold og því þurfti að færa boltann út fyrir í kargann. Flottar holur sem lágu í áttina til baka að klúbbhúsinu. Sautjánda er síðan löng par 3 og átjánda er skemmtileg lokahola, par 5 og heilir 463 metrar. Frá svölunum á klúbbhúsinu er hægt að sjá yfir á 18. flötina og fyrsta teig. Það er mjög gaman að sitja þar með drykk eða hádegisverð í góðu veðri og kíkja yfir á kylfingana.
Útkoman er skemmtileg links-upplifun þegar maður horfir frá þessu brautarveseni. Það var búið að skera í þær flestar, oft nefnt að „slæsa“, og þær voru því mjög mjúkar, sem er ekki algengt á alvöru strandvöllum. Á fimm brautum vallarins var bara moldarsvæði og einungis hægt að slá bolta út í enda þar sem karginn mætti. Ástandið sem sagt frekar slæmt og aðgerðir í vinnslu til að snúa til betri vegar.
Forsvarsmaður Royal Ostend sagði Kylfingi að úrkoma hefði nánast engin verið mánuðum saman í sumar. Appelsínugult viðbúnaðarstig var sett á 16. júlí og fyrirtæki og aðilar hvattir til að spara vatn. Við vatnsskortinn hefði jafnframt þurft að forgangsraða mjög takmörkuðum vatnsbirgðum og því hefði ekki verið hægt að vökva brautir vallarins með eðlilegum hætti. Í sumar brunnu brautirnar hreinlega í þurrkinum og miklum hita en á sex vikna tímabili um mitt sumar fór dagshitinn fimmtán sinnum yfir 30 stig. Takmarkað vatn var þess í stað nýtt til að verja mikilvægustu leiksvæði vallarins. Flatirnar og svæðin í kringum þær voru áfram vökvuð og þeim haldið við. Það skýrði þann mikla mun sem sjá mátti á vellinum; flatirnar voru í góðu ástandi á meðan víða mátti sjá verulegar skemmdir á brautunum.
Merkileg saga
Saga þessa konunglega 120 ára gamla golfvallar er merkileg. Bæði golfvöllurinn og klúbbhúsið eyðilögðust í fyrri heimsstyrjöldinni. Að henni lokinni var allt byggt upp að nýju en völlurinn varð aftur fyrir mikilli eyðileggingu í síðari heimsstyrjöldinni.
Seymour Dunn sem hannaði Royal Ostend í upphafi, hannaði einnig einkagolfvöll Leopolds II konungs og var jafnframt upphaflegur hönnuður golfvallarins í Ravenstein sem er í Brussel. Belgíska ríkið leigði Leopold II landsvæði á þeim slóðum sem almennt voru kallaðar Ostend, en tilheyrðu í raun Klemskerke eða De Haan. Royal Ostend Golf Club stendur enn í dag á því landsvæði sem konungurinn valdi sjálfur.
Það var ósk Leopolds II að koma upp tveimur golfvöllum, öðrum við ströndina í Ostend og hinum á landareigninni Ravenstein í Brussel. Hugmyndin var að tengja vellina tvo saman sem systurvelli undir merkjum eins golfklúbbs, The Royal Golf Club de Belgique. Konungurinn ætlaði sjálfur að standa straum af kostnaðinum. Haft var eftir honum: „Hlutverk konungs er að auðga land sitt og því mun ég sjálfur bera kostnaðinn.“
Árið 1979 og nokkur ár þar á eftir kepptu nokkrir íslenskir kylfingar á alþjóðlegu móti á Ravenstein. Sá sem þetta skrifar gerði það tvisvar og lék völlinn svo aftur í vor sem var skemmtileg upplifun. Ravenstein er glæsilegur skógarvöllur, enda Royal eins og bróðir hans Ostend.
Eftir stríð var ráðist í umfangsmikla endurreisn og Royal Ostend Golf Club formlega opnaður á ný 7. júlí 1948. Frá sjötta áratugnum voru meðlimir belgísku konungsfjölskyldunnar tíðir gestir á vellinum. Leopold III Belgíukonungur var þar sérstaklega heimakær, enda góður kylfingur og reglulegur gestur hjá Royal Ostend. Í klúbbhúsinu er skilti með nafni konungs sem er forseti hans hverju sinni.
Á tíunda áratug síðustu aldar var völlurinn endurhannaður af hinum virta breska golfvallahönnuði Martin Hawtree. Samhliða því var klúbbhúsið endurnýjað frá grunni og því gefinn hlýlegur, klassískur enskur svipur. Síðan hefur aðstaðan verið færð enn frekar til nútímans, meðal annars með endurbótum á golfverslun, skrifstofum og búningsklefum.
Royal Ostend hefur einnig vakið athygli fyrir áherslu sína á umhverfisvernd og sjálfbæran rekstur. Klúbburinn varð fyrstur belgískra golfklúbba til að hljóta fimm stjörnu GEO-vottun fyrir umhverfisstjórnun sína.
Árið 2015 fékk Royal Ostend síðan enn frekari viðurkenningu þegar klúbburinn hlaut hin virtu Baillet Latour umhverfisverðlaun.
Royal Ostend sameinar því langa og viðburðaríka sögu, klassískt links-golf og sterka umhverfisvitund – á golfvelli sem er ólíkur öllum öðrum í Belgíu.
Royal Ostend - 18. holur - videoflug




