Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Vann loksins í 200. mótinu sínu
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 29. júní 2025 kl. 23:12

Vann loksins í 200. mótinu sínu

Sigrar á golfmótum eru misjafnir en Frakkinn Adren Saddier vann sitt fyrsta mót á DP mótaröðinni í 200. mótinu sem hann lék í á Argentario vellinum á Ítalíu um helgina. Hann grét í sjónvarpsviðtali eftir sigurinn þegar hann þakkaði foreldrum sínum fyrir stuðninginn.

Saddier var líklega ekki að hugsa um sigur þegar lokahringurinn var hálfnaður en þá var hann þremur höggum á eftir hinum unga Martin Couvra, sem er líka Frakki og vann sinn fyrsta sigur á mótaröðinni nýlega, aðeins 25 ára gamall. Fugl á fimm holum af næstu sex hjá Saddier kom honum í forystu sem hann sleppti ekki og tryggði sér sinn fyrsta sigur.

Frakkarnir tveir tryggðu sér báðir þátttökurétt á OPNA mótinu, fjórða og síðsta risamóti ársins sem fram fer 17.-20. júlí á Royal Portrush á N-Írlandi.

Kiðjaberg Gull 24
Kiðjaberg Gull 24

Lokastaðan.