Þórey og Þorkell best í Dimond mótinu í Leiru - myndir
Hjóna- og parakeppni Diamond Suites 2025 fór fram laugardaginn 7. júní í rjómablíðu á Hólmsvelli í Leiru. Mótið var fullbókað, 42 pör skráðu sig til leiks.
Keppendur nutu ljúffengs brunch og mímósu frá veitingasölunni Nítjánda, léku betri bolta í blíðunni og enduðu daginn á þriggja rétta kvöldverði og glæsilegri verðlaunaafhendingu á KEF Restaurant.
Úrslit:
1. sæti: Þorkell Þór Gunnarsson & Þórey Friðrikka Guðmundsdóttir – 51 punktur
2. sæti: Sólveig Björgvinsdóttir & Guðni H. Jónasson – 49 punktar
3. sæti: Ófeigur Grétarsson & Guðrún Þorsteinsdóttir – 49 punktar
Meðfylgjandi myndir sem sjá má í myndasafni hér að neðan tók ljósmyndari GS.