Svanur með draumahögg í Kiðjabergi
Svanur Þór Vilhjálmsson í GKB, fór holu í höggi á Kiðjabergsvelli nýlega. Hann sló höggið góða á 16. holu vallarins, notaði GAP-fleygjárnið en þetta er í fyrsta sinn sem hann fer holu í höggi.
„Ég sló ákveðið högg með gap wedge, sá strax að þetta var mjög gott högg. Það kom smá „draw“ á boltaflugið og boltinn lenti svo ofan í holu í öðru skoppi inn á flöt," sagði Svanur Þór í frétt áh heimasíðu GKB en hann er búinn að vera í klúbbnum í 10 ár. Hann er með 13 í forgjöf.
Svanur Þór er því kominn inn í hinn eftirsótta klúbb: Einherjaklúbbinn.