Sjö undir pari dugði Hákoni ekki
Hákon Örn Magnússon, GR var fimm höggum frá því að komast áfram á 2. stig DP Evrópumótaraðinnar í golfi en hann endaði jafn í 51. sæti á 7 höggum undir pari á úrtökumóti á 1. stigi. Leikið var á Montado vellinum í Palmela í Portúgal.
Hákon lék hörku golf á fjórða keppnisdegi og endaði á -4, fékk 8 fugla, tvo skolla og einn tvöfaldan skolla, samtals 68 högg. Skorið í úrtökumótinu var mjög gott en 23. sæti og betra gaf áframhaldandi þátttökurétt á stig 2.
Aron Snær Júlíusson, GKG, Íslandsmeistari 2021 var höggi frá því að komast í gegnum niðurskurðinn en var 3 undir pari eftir þrjá hringi.
Connor McKinney var efstur á 25 höggum undir pari. Hann fékk 34 fugla á 72 holum sem er tvö högg frá því að vera fugla á annrri hverri holu í mótinu. Algerlega magnað. Hákon Örn fékk 16 fugla og einn örn en tíu skolla og tvo tvöfalda.
Alls voru 130 keppendur á mótinu í Portúgal. Úrslit.
Á þessu hausti ætla 10 íslenskir kylfingar að reyna sig á úrtökumótinu fyrir DP-Evrópumótaröðina.
Alls er keppt á níu keppnisstöðum á 1. stigi úrtökumótsins og er þremur mótum nú þegar lokið og síðasta mótið fer fram í byrjun október.
Axel Bóasson, GK og Kristófer Karl Karlsson, GM hefja leik á 1. stigi úrtökumótsins 13. september á Arlandastad vellinum við Stokkhólm í Svíþjóð.
Þann 14. september hefja Bjarki Pétursson, GKG, Sigurður Arnar Garðarsson, GKG og Kristófer Orri Þórðarson, GKG leik á 1. stig úrtökumótsins á Haugschlag vellinum í Austurríki.
Þann 4. október keppir Andri Már Óskarsson, GOS, á Hardelot vellinum í Frakklandi.
Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GKG og Haraldur Franklín Magnús, GR, mæta til leiks á 2. stigi úrtökumótsins.
Gera má ráð fyrir að um 800 keppendur taki þátt á öllum níu mótunum á 1. stig úrtökumótsins og um 20% þeirra komast áfram áfram á 2. stigið. Til þess að komast alla leið inn á DP-Evrópumótaröðina þurfa keppendur að fara í gegnum 1., 2. og 3. stig úrtökumótsins. Lokaúrtökumótið fer fram í byrjun nóvember á Lakes golfsvæðinu við Tarragona á Spáni. Þar keppa 156 keppendur um 25 sæti á DP-Evrópumótaröðinni 2023.