Sigurbjörn stóð sig vel í hitanum í Tyrklandi
Þrír íslenskir kylfingar voru meðal þátttakenda á Evrópumeistaramóti eintaklinga 50 ára og eldri sem fram fór á Cornelia golfvellinum á Belek svæðinu í Antalya í Tyrklandi. Sigurbjörn Þorgeirsson frá Golfklúbbi Fjallabyggðar sýndi enn og aftur góða frammistöðu í mótum erlendis og endaði í 27. sæti.
Sigurbjörn segir að aðstæður hafi verið krefjandi, völlurinn erfiður og hrikalega heitt. „Ég lék með hanska á báðum höndum allan tímann því mér gekk illa að halda utan um kylfurnar í rakanum. Þetta gekk samt nokkuð vel, ég fór illa út úr tveimur holum, 2. og 14. braut en heildin ágæt,“ sagði Sigurbjörn.
Bjössi lék á 78-76-74 eða +12.
Einar Long var einnig meðal keppenda í karlaflokki en var í vandræðum í hitanum og lék á 88 og 87 höggum.
Ragnheiður Sigurðardóttir var fjórum höggum frá því að komast í gegnum niðurskurðinn en hún lék á 86 og 85 höggum.