Fréttir

Sextán ár á milli draumahögga
Jóhannes tekur boltann úr holu á 18. braut á Hamarsvelli.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 27. júlí 2024 kl. 13:21

Sextán ár á milli draumahögga

Jóhannes Snorri Ásgeirsson úr Golfklúbbi Suðurnesja fór holu hí höggi á 18. braut á Hamarsvelli í Borgarnesi í gær. Jóhannes sló þetta fína högg með 9-járni sem endaði í holu.

Þetta er í annað sinn sem Jóhannes Snorri nær draumahögginu en hann gerði það síðast fyrir sextán árum síðan, þá 11 ára, á hinni margfrægu Bergvík á Hólmsvelli í Leiru.

Hér má sjá video af kappanum á 18. teignum í Borgarnesi.