Fréttir

Ólafía Þórunn lék lokahringinn á pari
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Ljósmynd: Tristan Jones/LET
Ólafur Pálsson
Ólafur Pálsson skrifar
sunnudaginn 17. júlí 2022 kl. 16:39

Ólafía Þórunn lék lokahringinn á pari

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR lauk leik í dag á Big Green Egg Open í Hollandi en mótið er hluti af Evrópumótaröðinni. Ólafía Þórunn lék lokahringinn á 72 höggum eða pari Rosendaelsche vallarins. Hún lék hringina fjóra á 291 höggi (70-78-71-72) eða samtals á 3 höggum yfir pari og hafnaði í 29.-30. sæti.

Mótið var fjórða mót Ólafíu Þórunnar síðan hún hóf endurkomu sína á keppnissviðið eftir að hafa borið sitt fyrsta barn undir belti. Henni tókst ekki að komast í gegnum niðurskurðinn í hinum mótunum þremur.

Anna Nordqvist frá Svíþjóð, sem var með eins höggs forskot fyrir lokahringinn, lék á sama skori og Ólafía Þórunn í dag og það dugði til sigurs. Hún lauk leik á 7 höggum undir pari, einu höggi á undan Sarah Schober frá Austurríki.

Lokastaðan á mótinu