Magnað vallarmet hjá Skúla á Kiðjabergsvelli
Akureyringurinn Skúli Gunnar Ágústsson úr GKG setti glæsilegt vallarmet á Kiðjabergsvelli á lokadegi GJG Icelandic Juniors International 2025, sem spilað var á Kiðjabergsvelli í síðustu viku. Hann lék á 64 höggum af öftustu teigum, eða 7 höggum undir pari - fékk 7 fugla og 11 pör. Hann bætti þar með vallarmet Arnars Snæs Hákonarsonar frá því 2012 um tvö högg, en áður höfðu þeir Birgir Leifur Hafþórsson og Örvar Samúelsson átt vallarmetið sem var 68 högg.
Frá þessu er greint á heimasíðu Golfklúbbs Kiðjabergs og þar segir jafnframt:
Skúli Gunnar er ný orðinn 19 ára gamall. Kemur frá Akureyri og kláraði stúdentspróf frá Menntaskólanum á Akureyri í vor. Hann er nú fluttur suður og er í GKG þar sem hann æfir undir handleiðslu Andrésar Davíðssonar golfkennara. Hann ætlar sér stóra hluti í golfinu í framtíðinni og hefur þegar fengið inngöngu í einn besta golf háskóla Bandaríkjanna, University of Louisiana-Lafayette, haustið 2026. Þetta er helsti Íslendingaskólinn í háskólagolfinu og meðal þeirra sem þarna hafa verið eru Úlfar Jónsson, Haraldur Franklín, Aron Snær og Ragnar Már.
Um hringinn góða á Kiðjabergsvelli sagði hann: „Það gekk ótrúlega vel hjá mér á þessum hring. Var að slá mjög vel og kom mér í fullt af sénsum. Mér leið eins og ég hefði getað spilað á 10 höggum undir pari. Á sjöttu holu (par-4) sló ég inn á flöt af teig með 4-járni og var svekktur að þrípútta þar og fá bara par. Veðrið var frábært þennan dag, logn og sól og völlurinn í flottu standi. Þetta er besti hringur sem ég hef spilað í móti til þessa á ævinni,” sagði Skúli Gunnar kampakátur.
Einn af mínum uppáhalds
“Mér finnst völlurinn mjög fjölbreyttur og skemmtilegur. Frábært landslag og ég mæli með því fyrir alla kylfinga að spila völlinn. Þetta er einn af mínum uppáhalds völlum, ekki nokkur spurning. Mínar uppáhalds holur á vellinum eru 6. og 7. holan, en margar aðrar mjög flottar.”
Hann segir að golfið hafi verið að smella inn hjá sér eftir því sem liðið hefur á sumarið. „Ég er yfirleitt góður af teig og svo hafa járnin verið mjög sterk og ég er oftast að koma mér í góð færi. Svo er þetta alltaf spurning um hvort pútterinn er heitur eða kaldur.”
Skúli hefur lækkað sig í forgjöf í sumar, byrjaði sumarið í +1,5 og hækkaði svo upp í +0,7, en er núna kominn niður í +3,0.
Hér fyrir neðan má sjá skorkort Skúla: