Litli bróðir sigraði viku síðar
Það er afar sjaldgæft að bræður sigri á mótum atvinnumanna í sitt hvorum heimshlutanum á tveimur vikum. Englendingurinn Alex Fitzpatrick er minna þekkti Fitzpatrick-inn en hann sigraði í fyrsta sinn á atvinnumannamóti í gær. Bróðir hans, Matt, sigraði á PGA mótaröðinni um síðustu helgi. Þetta er í fyrsta skipti sem það gerist að bræður vinni á PGA og DP á tveimur vikum.
Alex var við leik í móti vikunnar á DP mótaröðinni í Indlandi. Hann var fjórum höggum á eftir forystusauðnum fyrir lokahringinn en lék best þá og tryggði sér sinn fyrsta sigur með því að leika á 69 höggum,-3 í fjórða og síðasta hringnum.
Alex vann sér þátttökurétt á DP mótaröðinni fyrir tveimur árum og vakti athygli þegar hann vann sér rétt til að leika á OPNA mótinu, en þar var Matt, bróðir hans meðal keppenda. Matt hefur sigrað tíu sinnum á DP röðinni, þar af þrisvar á PGA. Hann á einn risasigur, Opna bandaríska mótið.



