Kiðjaberg Gull 24
Kiðjaberg Gull 24

Fréttir

Lék á 59 höggum - fékk 12 fugla
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 20. júní 2025 kl. 10:55

Lék á 59 höggum - fékk 12 fugla

Belgíumaðurinn Adrien Dumont de Chassart lék á 59 höggum á fyrsta hring á Wichita mótinu á Korn Ferry mótaröðinni en þetta er næst sterkasta mótaröðin í Bandaríkjunum. Hinn 25 ára Adrien fékk tólf fugla og einn skolla í þessum magnaða hring og setti vallarmet en þetta er 14. hringurinn á 59 höggum í sögu mótaraðarinnar.

Adrian vann sér þátttökurétt á Korn Ferry 2023 eftir að  hafa endaði í 3. sæti á háskólalistanum í Bandaríkjunum. Hann sigraði í sínu fyrsta móti á Korn Ferry 2023 en hann var einn af bestu áhugamönnum heims áður en hann fór í atvinnumennsku.

Örninn 2025
Örninn 2025

Hann endaði í 11. sæti á Korn Ferry 2023 og vann sér inn takmarkaðan þátttökurétt á PGA röðinni og lék í 27 mótum 2024 en náði ekki að halda keppnisrétti og hefur aðallega leikið á Korn Ferry  á þessari keppnistíð.