Fréttir

Íslandsmót: Kylfingur.is labbar með og spjallar við Kristófer Karl, Hlyn Geir og Ragnar Má
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
fimmtudaginn 18. júlí 2024 kl. 12:00

Íslandsmót: Kylfingur.is labbar með og spjallar við Kristófer Karl, Hlyn Geir og Ragnar Má

Íslandsmótið í golfi er komið á fullt og í þessum skrifuðu orðum leiðir Magnús Yngvi Sigsteinsson hjá körlum á -4, búinn að leika 13 holur og hjá konum leiðir Kristín Sól Guðmundsdóttir en er þó bara búin að leika tvær holur.

Kylfingur heldur áfram að rölta með keppendum og spjalla við þá, þeir Kristórfer Karl, Hlynur Geir og Ragnar Már, voru ferskir á 1. holu í morgun.