Fréttir

Ísland fyrir neðan miðjan hóp eftir fyrsta hring á EM kvenna
Perla Sól Sigurbrandsdóttir lék á 1 höggi yfir pari á fyrsta keppnisdegi á EM. Ljósmynd: GSÍ/Sigurður Elvar Þórólfsson
Ólafur Pálsson
Ólafur Pálsson skrifar
þriðjudaginn 5. júlí 2022 kl. 19:57

Ísland fyrir neðan miðjan hóp eftir fyrsta hring á EM kvenna

Það er mikið um að vera hjá landsliðskylfingunum okkar í vikunni en Evrópumót landsliða fara fram hér og þar um álfuna í mismunandi aldursflokkum. Alls eru 528 keppendur á EM mótunum frá 29 þjóðríkjum.

Keppnisfyrirkomulagið er með þeim hætti að fyrstu tvo keppnisdagana er leikinn höggleikur þar sem að fimm lægstu skorin hjá hverju liði telja. Liðunum er raðað upp í riðla eftir árangri í höggleiknum, átta efstu liðin leika í holukeppni í A-riðli um Evrópumeistartitilinn og önnur lið leika um sætin þar fyrir neðan. Í B-riðli er leikið um sæti 9.-16 og í C-riðli um sætin þar fyrir neðan.

Í holukeppninni eru leiknar tvær umferðir á dag. Í fyrri umferðinni eru leiknir tveir fjórmenningsleikir (Foursome) þar sem tveir leikmenn leika gegn tveimur öðrum leikmönnum og hvort lið leikur einum bolta. Eftir hádegi eru leiknir fimm tvímenningsleikir, þar sem einn leikmaður leikur gegn öðrum leikmanni.

Evrópumót kvennalandsliða fer fram á Conwy vellinum í Wales. Þetta er í fyrsta sinn sem mótið fer fram á þessum velli en 20 þjóðir senda lið til keppni á EM að þessu sinni.

Conwy völlurinn í Wales. Ljósmynd: ega-golf.ch

Fyrsta keppnisdegi er lokið í Wales og okkar konur sitja eftir daginn í 16. sæti. Þær léku samtals á skori sem telur 25 högg yfir par vallarins. Þrjú lið eru efst og jöfn að loknum fyrsta hring; þýska liðið, enska liðið og sænska liðið á samtls 7 höggum yfir pari vallarins. Fyrstu konur verða ræstar út á annan hringinn laust fyrir klukkan sjö í fyrramálið á íslenskum tíma.

Staðan á mótinu

Íslenska kvennalandsliðið skipa þær Saga Traustadóttir úr GKG, Heiðrún Anna Hlynsdóttir úr GOS, Andrea Bergsdóttir úr GKG, Hulda Clara Gestsdóttir úr GKG, Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir úr GR og Perla Sól Sigurbrandsdóttir úr GR. Liðsstjóri er Heiðar Davíð Bragason.

Heiðar Davíð Bragason liðsstjóri, Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir, Saga Traustadóttir, Hulda Clara Gestsdóttir, Heiðrún Anna Hlynsdóttir og Perla Sól Sigurbrandsdóttir. Á myndina vantar Andreu Bergsdóttur. Ljósmynd: GSÍ/Sigurður Elvar Þórólfsson