Helgi Dan og Dýrleif klúbbmeistarar GG
Helgi nálgast tuginn í titlum, nýliðinn Dýrleif vann í fyrstu tilraun
Meistaramót Golfklúbbs Grindavíkur (GG) fór fram í vikunni og annað árið í röð var bara um þriggja daga mót að ræða í stað hefðbundinna fjögurra daga. Mótið átti að hefjast miðvikudaginn 16. júlí en vegna eldgossins þurfti að blása fyrsta dag af og því hófst mótið ekki fyrr en á fimmtudag. Helgi Dan Steinsson varð að vanda klúbbmeistari karla og nálgast hann tug titla í þessu vinsælasta golfmóti GG. Nýliðinn Dýrleif Arna Guðmundsdóttir kom, sá og sigraði en hún er ein fjögur hundruð nýrra meðlima GG síðan í vor.
Kylfingur mætti á lokahófið og tók klúbbmeistarana tali að lokinni verðlaunaafhendingu.