Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Gulli með DeChambeau, Reed og besta áhugakylfingi heims
Bryson, Gulli, Reed og Koivun.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
mánudaginn 15. júní 2026 kl. 20:16

Gulli með DeChambeau, Reed og besta áhugakylfingi heims

Gunnlaugur Árni Sveinsson lék æfingahring fyrir Opna bandaríska mótið með heimsþekktum kylfingum í gær á Shinnecock vellinum í New York. Með honum í ráshópi voru tvöfaldur bandarískur meistari, Bryson DeChambeau og efsti kylfingur Evrópumótaraðarinnar, Patrick Reed að ógleymdum besta áhugamanni Bandaríkjanna, Jackson Koivun.

DeChambeau vann US Open 2020 og 2024 en hefur leikið á LIV mótaröðinni undanfarin ár. Hann hefur verið einn litríkasti og besti kylfingur heims undanfarin ár. Reed var líka á LIV en hætti þar um áramótin og hóf keppni á DP Evrópumótaröðinni í byrjun ár með frábærum árangri og er efstur á stigalistanum á DP.

Fjórði maðurinn í hollinu var engin annar er hinn magnaði Koivun. Hann hefur náð mögnuðum árangri í háskólagolfinu undanfarin ár og sigrað á ellefu mótum. Hann leiddi háskólalið Auburn til sigur í NCAA deildinni. Árangur hans er svipaður og Tiger Woods náði sem áhugamaður og ummæli um kappann eru þannig að hann er sagður besti áhugamaður heims - síðan Tiger Woods var og hét. Eftir síðasta ár Koivun í háskóla, nú í vor, gaf hann það út að hann ætlaði að gerast atvinnumaður og mun eftir US Open leika á sínu fyrsta móti sem slíkur, í John Deere Classic mótinu. Honum er spáð velgengni í mótinu af Golf Channel, 41-50. sæti. Það er eitthvað. Gullla er spáð 111-120. sæti.

Framundan hjá Gulla er hins vegar er æfingahringur með Scottie Scheffler, besta kylfingi heims en þeir eru báðir hjá sömu umboðsskrifstofunni.