Guðrún náði ekki að fylgja eftir góðri byrjun - endaði í 42. sæti
Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr GK endaði jöfn í 42. sæti á German Masters mótinu á LET Evrópumótaröð kvenna, þeirri sterkustu í Evrópu en leikið var á Green Eagle golfvellinum í Þýskalandi. Guðrún átti erfiða helgi eftir frábæra byrjun og náði ekki að fylgja eftir góðri frammistöðu fyrstu tvo hringina.
Guðrún lék þriðja hringinn á 78 og fjórða á 77 höggum og endaði á fimm höggum yfir pari. Fyrstu tvo hringina lék hún á 71 höggi. Aðstæður voru mjög erfiðar á lokahringnum vegna mikils vinds.
Guðrún var að klára fjórða mótið sitt í röð á LET Evrópumótaröðinni. Hún náði í gegnum niðurskurðinn á þessu fjórða en ekki hinum þremur. Guðrún lék á tveimur mótum í maí og náði í gegnum niðurskurðinn á öðru þeirra. Hún er í 135. sæti á stigalistanum.
Shannon Tan frá Singapore sigraði á mótinu á -9.