Fréttir

Guðrún í 26. sæti í Englandi
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 1. september 2024 kl. 15:41

Guðrún í 26. sæti í Englandi

Guðrún Brá Björgvinsdóttir endaði jöfn í 26. sæti á móti á LET Access mótaröðinni í Evrópu en leikið var í Englandi. Hún var jöfn í 2. sæti eftir að hafa leikið á tveimur undir pari í fyrsta hring en slakur annar hringur færði hana niður listann. Ragnhildur Kristinsdóttir var einnig meðal þátttakenda en komst ekki í gegnum niðurskurðinn.

Guðrún lék hringina þrjá á 70-79-72 og endaði á +3.

Ragnhildur lék á 74-76 +6.

Guðrún er í 51. sæti og Ragnhildur í 77. sæti á stigalistanum.