Fréttir

Fínasta golfveður á Korpunni
Pamela Ósk Hjaltadóttir sigraði í flokki 14 ára og yngri stelpna. Ljósmynd: GSÍ/Sigurður Elvar Þórólfsson
Ólafur Pálsson
Ólafur Pálsson skrifar
þriðjudaginn 19. júlí 2022 kl. 18:22

Fínasta golfveður á Korpunni

Þriðja mót keppnistímabilsins á Unglingamótaröðinni fór fram í samstarfi við Kristal á Korpúlfsstaðavelli Golfklúbbs Reykjavíkur dagana 14.-16. júlí sl. Mótið gekk einstaklega vel enda var fínasta golfveður alla keppnisdagana þó golan hefði látið bæra á sér á öðrum keppnisdegi.

Lokastaðan á mótinu

Tveir elstu keppnishóparnir hófu leik á fimmtudag og léku 54 holur. Aðrir keppnishópar léku 36 holur á tveimur keppnisdögum, föstudag og laugardag. Áskorendamótaröð barna og unglinga var leikinn á miðvikudeginum á Landinu á Korpunni og gekk hún mjög vel. Keppt var í fjórum aldursflokkum pilta og þremur hjá stúlkum.

Úrslitin voru eftirfarandi:

14 ára og yngri stelpur:

1. sæti – Pamela Ósk Hjaltadóttir, GM
2. sæti – Lilja Dís Hjörleifsdóttir, GK
3. sæti – Ninna Þórey Björnsdóttir, GR

14 ára og yngri strákar:

1. sæti – Arnar Daði Svavarsson, GKG (eftir bráðabana)
2. sæti – Gunnar Þór Heimisson, GKG
3. sæti – Máni Freyr Vigfússon, GK

15 – 16 ára stelpur:

1. sæti – Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR
2. sæti – Eva Kristinsdóttir, GM
3.-4. sæti – Elísbet Ólafsdóttir, GKG
3.-4. sæti – Katrín Embla Ólafsdóttir, GOS 

15 – 16 ára strákar:

1. sæti – Skúli Gunnar Ágústsson GA
2. sæti – Elías Ágúst Andrasson GR
3. sæti – Veigar Heiðarsson GA 

17 – 18 ára stúlkur:

1. sæti – Nína Margrét Valtýsdóttir, GR
2. sæti - Katrín Hörn Daníelsdóttir, GKG
3. sæti – Sara Kristinsdóttir, GM 

17 – 18 ára piltar:

1. sæti – Gunnlaugur Árni Sveinsson GKG
2. sæti – Óskar Páll Valsson GA
3. sæti – Bjarni Þór Lúðvíksson NK

19 – 21 árs piltar

1. sæti – Magnús Máni Kjærnested, NK
2. sæti – Birkir Blær Gíslason, NK

Veitt voru nándarverðluan á öllum par 3 holum vallarins og voru eftirfarandi næstu holu:

13. braut kvennaflokkur:

Katrín Hörn Daníelsdóttir, GKG - 2,40 m

13. braut karlaflokkur:

Alexander A. Jóhannsson, GR - 1,41 m

17. braut kvennaflokkur:

Pamela Ósk Hjaltadóttir, GM - 10 cm

17. braut karlaflokkur:

Benedikt Blöndal, NK - 2,50 m

22. braut kvennaflokkur:

Sara Kristinsdóttir, GM - 6,42 m

22. braut karlaflokkur:

Tryggvi Jónsson, GKG - 1,70 m 

25. braut kvennaflokkur

Elva María Jónsdóttir, GK - 2,46 m

25. braut karlaflokkur

Arnór Már Atlason, GR - 1,18 m