Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Fín frammistaða hjá Andreu og Ragnhildi í Svíþjóð
Andrea Bergsdóttir er í 11. sæti stigalistans á LET Access mótaröðinni.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
mánudaginn 30. júní 2025 kl. 15:03

Fín frammistaða hjá Andreu og Ragnhildi í Svíþjóð

Þær Andrea Bergsdóttir og Ragnhildur Kristinsdóttir stóðu sig vel á á PGA mótinu á LET Access mótaröðinni, þeirri næst sterkustu í Evrópu, sem fram fór á Vesterby vellinum í Svíþjóð í síðustu viku. Andrea endaði jöfn í 14. sæti og Ragnhildur Kristinsdóttir varð jöfn í 22. sæti.

Andrea lék á +2 71-74-74-69 og Ragga var höggi á eftir henni á þremur yfir pari 74-72-72-72.

Örninn 2025
Örninn 2025

Andrea er í 11. Sæti stigalistans en Ragga í því 29 en þær hafa báðar leikið í sex mótum á árinu.

Lokastaðan í Svíþjóð.