Erfiður lokahringur hjá Haraldi í Sviss
Haraldur Franklín Magnús endaði í 53. sæti á Swiss Challenge mótinu á Áskorendamótaröðinni í Lucerne í Sviss í dag.
Eftir þrjá stöðuga og góða hringi og -4 og í kringum 20. sætið lenti Haraldur í hremmingum í lokahringnum en erfiðar aðstæður voru, vont veður og skorið hátt. Daninn Jeppe Andersen var t.d. ellefu undir pari eftir 54 holur en lék síðasta hringinn á „bógíinu“, eða 18 yfir pari, 89 höggum.
Haraldur lék á sex yfir pari á lokahringnum og endaði á +2 í heildina og 53. sæti. Hann sló tvo bolta út fyrir vallarmörk og lenti í vandræðum eins og reyndar margir keppendur.
Haraldur vonast til að komast inn í næsta mót sem er í Tékklandi en annars er hann öruggur í mót í Frakklandi vikuna á eftir.
Guðmundur Ágúst Kristjánsson var einnig meðal keppenda en komst ekki í gegnum niðurskurðinn.