Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Elgur á Masters matseðlinum og eðalvín hjá Rory -
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 26. mars 2026 kl. 06:28

Elgur á Masters matseðlinum og eðalvín hjá Rory -

Rory kemur víð í meistaramatseði ársins á Masters mótinu en það er árleg hefð að sigurvegari síðasta árs velji meistaramatseðilinn. Rory velur m.a. beikonvafðar döðlur sem hann er alinn upp við hjá mömmu sinni, elgs-sneiðar eru einnig í forrétt en síðan er það Wago nautalund eða pönnusteiktur lax í aðalrétt, svo dæmi séu tekin.

„Fyrir mótið í fyrra var ég að borða mikið af elgskjöti. Ég var að hugsa um að hafa hann í aðalrétt en var ekki viss um að það myndi falla í kramið hjá öllum svo ég setti hann í forrétt,“ sagði Rory Mcilroy m.a. þegar hann var spurður um réttina á matseðlinum.

Hér að neðan má sjá þýðingu gerfigreindarinnar á matseðlinum.

Forréttir:

  • Flatbrauð með ferskjum og ricotta: Balsamik, sterkt hunang, basilíka.
  • Djúpsteiktar „Rock rækjur“: Kremuð sterk sósa.
  • Döðlur vafðar í beikon: Geitaostur, möndlur.
  • Grillaðir elgs-borgarar (sliders): Karamelliseruð lauksulta, ristuð hvítlauksmæjónes (aioli).

Fyrsti réttur:

  • Yellowfin Túnfisk-Carpaccio: Gæsalifur (foie gras), ristað snittubrauð, graslaukur.

Aðalréttur

Val á milli:

  • Wagyu nautalund eða pönnusteiktur lax:
    • Meðlæti: Hefðbundin írsk „champ“ (stappa með lauk), steikt rósakál, glerjaðar gulrætur með brúnuðu smjöri og stökkir Vidalia laukhringir.

Eftirréttur

  • Toffí búðingur: Vanilluís og heit tófísósa.

Vínlisti

  • 2015 Salon „S“, Brut, Le Mesnil-sur-Oger, kampavín
  • 2022 Domaine Leflaive, Batard-Montrachet, Puligny-Montrachet, Búrgúndí
  • 1990 Chateau Lafite Rothschild, Pauillac, Bordeaux
  • 1989 Chateau d’Yquem, Sauternes, Bordeaux

Vínlistinn er sá dýrasti sem boðið hefur verið upp á í mörg ár og er dýrasta flaskan tæplega 300 þúsund króna virði.