Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Einn litríkasti golfkennari Íslands – og líklega Spánar, í spjalli í Seinni níu
Mánudagur 9. júní 2025 kl. 13:50

Einn litríkasti golfkennari Íslands – og líklega Spánar, í spjalli í Seinni níu

Ívar Hauksson er einn litríkasti golfkennari Íslands og þó víðar væri leitað. Hann kom í spjall til Loga og Jóns Júlíusar í hlaðvarpsþættinum Seinni níu en Ívar hefur undanfarin 30 ár búið á Spáni þar sem hann kennir golf. Stundum er hann kallaður Kóngurinn á Mar Meno.

Í júní tekur Ívar að sér golfkennslu hér á Íslandi, og komast færri að en vilja. Í ár eru um 75 manns á biðlista eftir að komast undir handleiðslu Ívars, sem kennir golf frá morgni til kvölds.

Ívar segir frá golfferli sínum, sem hófst þegar hann var aðeins þriggja ára. Hann rifjar upp nokkrar skemmtilegar sögur og Ívar deilir einnig nokkrum góðum ráðum til kylfinga. Þar kemur meðal annars fram að flestir kylfingar séu með of lágan fláa á drævernum – að hans mati.

Örninn 2025
Örninn 2025

Hann ræðir einnig ást sína á 7-trénu, sem hann segir vera að breyta leiknum. Draumahollið er á sínum stað, og þar koma við sögu afar litríkir kylfingar.

Frábær þáttur með einum af okkar allra skemmtilegustu köppum í golfíþróttinni á Íslandi.