Fréttir

Eagle Golf með ferðir til Belek golfsvæðisins - 15 golfvellir
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 10. október 2024 kl. 15:05

Eagle Golf með ferðir til Belek golfsvæðisins - 15 golfvellir

Nýr áfangastaður hjá ferðaskrifstofunni Eagle Golf er Belek í Tyrklandi. „Belek er ótrúlegt golfsvæði með yfir 15 golfvöllum, hver öðrum betri og flottari. Við hjá Eagle Golfferðum höfum sett upp skipulagðar ferðir fyrir vorið og haustið 2025 þar sem gist er á Regnum Carya, og spilaðir verða vellirnir Carya golf, National golf og Culinan golf,“ segir Árni Hallgrímsson, eigandi Eagle Golf.

Í Belek er í boði að leika golf að kvöldi til í flóðljósum. Árni segir að flogið sé beint með Play til Antalaya í Tyrklandi en þaðan er um 30 mín. akstur til Belek golfsvæðisins. Þar eru 15 golfvellir og gistingin framúrskarandi sem og matur. Á annan tug veitingastaða og bara eru á svæðinu sem og margar sundlaugar, spa og strönd.

Boðið er upp á ferðir vor og haust 2025 með öllu inniföldu í mat og drykk og matargerð frá Perú, Japan, Ítalíu, Tyrklandi og fleiri löndum.

Nánar á https://eaglegolf.is/

Árni Hallgrímsson hjá Eagle Golfferðum.