Fréttir

Aron Snær: Gekk vel á flötunum á lokadeginum
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
mánudaginn 22. júlí 2024 kl. 11:25

Aron Snær: Gekk vel á flötunum á lokadeginum

„Ég var miklu betri á pútternum á lokadeginum heldur en hina dagana. Aðstæður voru erfiðari en ég herðist oft við það og þetta gekk bara vel í spennandi keppni,“ sagði Aron Snær Júlíusson m.a. í viðtali eftir að hafa tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í golfi 2024 á Hólmsvelli í Leiru.

Kylfingur.is fylgdi bestu kylfingunum eftir og hér má sjá svipmyndir af Aroni á lokadeginum og viðtal við hann að leik loknum.