Aron Snær: Gekk vel á flötunum á lokadeginum
„Ég var miklu betri á pútternum á lokadeginum heldur en hina dagana. Aðstæður voru erfiðari en ég herðist oft við það og þetta gekk bara vel í spennandi keppni,“ sagði Aron Snær Júlíusson m.a. í viðtali eftir að hafa tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í golfi 2024 á Hólmsvelli í Leiru.
Kylfingur.is fylgdi bestu kylfingunum eftir og hér má sjá svipmyndir af Aroni á lokadeginum og viðtal við hann að leik loknum.