Versti púttari í Evrópu og víðar miðað við forgjöf
Kylfingur dagsins er Keflvíkingur og sló því fyrstu höggin í Leirunni. Hans helsta afrek í golfinu er að hafa ekki ennþá farið holu í höggi og hann segir leitun að eins lélegum púttara og hann er.
Örvar Þór Sigurðsson starfar sem Lead product designer hjá Kaptio sem er ferðaþjónustuhugbúnaður.
Hvenær byrjaðir þú í golfi og hvernig gerðist það?
Ætli ég hafi ekki byrjað um 10-12 ára. Pabbi var að spila og bróðir minn vann í pro sjoppunni hjá John Pryor í GS ásamt því að spila og þeir kenndu mér sveifluna mestmegnis.
Helstu afrek í golfinu?
Að hafa ekki farið holu í höggi ennþá…
Hvað er það neyðarlegasta sem þú hefur lent í á golfvellinum?
Kannski ekki neyðarlegt en fyrsta sem kom upp í hugann var að ég sjankaði tvo OB á áttundu í Leirunni í meistaramóti og hef aldrei liðið verr á vellinum en þá.
Hver er „frægasti“ kylfingurinn sem þú hefur leikið með?
Örn Ævar Hjartarson.
Ertu hjátrúarfull/ur hvað varðar golf?
Alls ekki.
Hvað er það sem þú þarft mest að bæta í þínum golfleik?
Er líklega versti púttari í Evrópu og fleiri heimsálfum miðað við forgjöf.
Aldur: 45 ára
Klúbbur: GS
Forgjöf: 3,3
Uppáhaldsmatur: Sushi
Uppáhaldsdrykkur: Amino að sjálfsögðu.
Uppáhaldskylfingur: Tiger og Siggi Sigurbjörns.
Þrír uppáhaldsgolfvellir: Leiran, Oddurinn og Grafarholt.
Þrjár uppáhaldsgolfbrautir á Íslandi: Fimmtánda braut í Leirunni, fyrsta í Grafarholti og þrettánda í Kiðjabergi.
Erfiðasta golfholan: Örugglega 9. í Sandgerði, óþolandi.
Erfiðasta höggið: Upphafshöggið á Bergvíkinni á hvítum teigum.
Ég hlusta á: Smashing Pumpkins og mömmu.
Besta skor: 67 í Leirunni.
Besti kylfingurinn: Kári Píp.
Golfpokinn
Dræver: Taylormade Qi10
Brautartré: 14 ára gamalt 3 tré í láni frá Kára Píp.
Járn: Titleist T100
Fleygjárn: Titleist SM8
Pútter: Odyssey AI One Seven S
Hanski: Footjoy
Skór: Sketchers