Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Metfjöldi kylfinga á Írlandi – 40% fjölgun á fimm árum
Portmarnoch links á Írlandi.
Fimmtudagur 26. nóvember 2026 kl. 12:36

Metfjöldi kylfinga á Írlandi – 40% fjölgun á fimm árum

Aldrei hafa fleiri verið félagar í golfklúbbum á Írlandi en nú. Í október voru skráðir félagar orðnir 252.800 talsins og hefur þeim fjölgað um 40% frá stofnun Golf Ireland, golfsambands Írlands, árið 2021.

Fyrra metið var frá árinu 2004 þegar 251 þúsund manns voru skráðir í golfklúbba á Írlandi. Samkvæmt nýrri könnun fjölgaði félögum hjá sjö af hverjum tíu golfklúbbum á síðasta ári.

Mark Kennelly, framkvæmdastjóri Golf Ireland, telur að frábær árangur írskra kylfinga á alþjóðavettvangi hafi átt stóran þátt í auknum áhuga almennings á íþróttinni. Þar fara fremstir í flokki þeir Rory McIlroy og Shane Lowry.

Yfir 1,5 milljónir tóku þátt í golfi

Á síðasta ári stunduðu yfir 1,5 milljónir manna á Írlandi golf í einhverri mynd. Þar af léku rúmlega 750 þúsund manns níu eða átján holu golfhringi.

Golfhermar njóta vaxandi vinsælda en um 11% kylfinga léku í golfhermi á undanförnum tólf mánuðum og rúmlega 20% léku á par 3 völlum eða öðrum stuttum golfvöllum.

Þá segjast 22% þeirra sem ekki stunda golf hafa áhuga á að prófa íþróttina.

Öflugt starf meðal ungs fólks

Írar hafa lagt mikla áherslu á nýliðun í golfíþróttinni. Yfir 65 þúsund nemendur hafa fengið kynningu á golfi í gegnum sérstök verkefni í skólum landsins.

Þá hefur iGolf-verkefnið, sem gerir kylfingum kleift að fá opinbera forgjöf án þess að vera félagar í golfklúbbi, skilað góðum árangri. Tæplega 7.400 kylfingar hafa skráð sig í verkefnið frá árinu 2024 og yfir eitt þúsund þeirra hafa í kjölfarið gengið í golfklúbba.

Ryder-bikarinn fram undan

Mikil eftirvænting ríkir í írska golfheiminum fyrir Ryder-bikarinn sem fram fer á Adare Manor í september 2027. Þá verða liðin 21 ár frá því keppnin fór síðast fram á Írlandi, á The K Club árið 2006.

Golf Ireland hyggst kynna nýja stefnu í janúar með það að markmiði að nýta þann mikla áhuga sem fylgir Ryder-bikarnum til að fjölga golfiðkendum enn frekar og tryggja að ávinningurinn af keppninni verði til langs tíma.