Fréttir

Karl Ómar ráðinn íþróttastjóri GR
Mánudagur 23. september 2024 kl. 14:39

Karl Ómar ráðinn íþróttastjóri GR

Karl Ómar Karlsson hefur verið ráðinn íþróttastjóri Golfklúbbs Reykjavíkur. Karl er GR-ingur að upplagi en megin verkefni hans í nýju starfi verður að skipuleggja og stýra barna-, unglinga og afreksstarfi GR.

Karl Ómar er menntaður grunn- og framhaldsskólakennari og PGA golfkennari, en hann lauk PGA námi í Svíþjóð 2003.  Hann hefur starfað við golfkennslu í yfir þrjá áratugi og þar af sem íþróttastjóri í um tvo áratugi, hjá Golfklúbbnum Leyni á Akranesi og Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði þar sem hann starfaði síðast.