Fréttir

Golf á sumarin, skíði á veturna
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
laugardaginn 27. júlí 2024 kl. 15:37

Golf á sumarin, skíði á veturna

Sigurbjörn Þorgeirsson er flottur kylfingur að norðan. Hann varð Íslandsmeistari 50 ára og eldri árið 2021 og keppir venjulega á meðal þeirra bestu. Hann var í Leirunni um síðustu helgi, komst í gegnum niðurskurðinn og átti flottan lokahring. Skíðin eru hans ær og kýr yfir veturinn en hann býr á Ólafsfirði.